Öflugur API (vefþjónusta) fyrir öruggar rekjanlegar gagnasendingar

Tengdu Justikal beint við þín innri kerfi og sjálfvirknivæddu afhendingu skjala með öruggum og einföldum hætti.

Einfaldar og öruggar samþættingar

API þjónustan gerir fyrirtækjum kleift að samþætta gagnasendingar beint inn í eigin kerfi og viðmót. Fyrirtæki geta með þessu meðal annars sjálfvirknivætt ferla og sent tilkynningar til viðskiptavina úr eigin kerfum.

Justikal API gerir þér kleift að:

  • Senda skjöl og gögn á öruggan hátt.
  • Sjálfvirknivæða afhendingu viðkvæmra upplýsinga.
  • Tengjast við innri kerfi.
  • Fylgjast með stöðu sendinga í rauntíma.
  • Fá tilkynningar með webhooks þegar atburðir eiga sér stað.

API þjónustan hentar bæði einföldum samþættingum og stærri innleiðingum þar sem öryggi, rekjanleiki og sjálfvirkni skipta máli.

Webhooks

Með webhooks getur Justikal sent upplýsingar sjálfkrafa til baka í innri kerfi viðskiptavina þegar ákveðnir atburðir eiga sér stað. Dæmi um atburði:

  • Sending afhent
  • Móttaka staðfest
  • Skjal undirritað
  • Dagsetning og tími afhendingar og staðfestingar

gagnasending