Dómsmál
Við gerum dómsmál hraðari, þægilegri og öruggari. Justikal er stafrænt réttarkerfi sem gerir aðilum í dómsmálum kleift að meðhöndla gögn á öruggan og rekjanlegan hátt í samræmi við eIDAS reglugerðina.
Héraðsdómstólar landsins taka við stafrænum gögnum sem send eru með lausn Justikal.
Málsaðilar hafa greiðan aðgang að gögnum og framvindu máls
Með því að stofna dómsmál í öruggu umhverfi Justikal, þar sem allir málsaðilar hafa aðgang að málsgögnum, má draga úr óþarfa símtölum og tölvupóstum milli aðila. Að hafa öll gögn á einum stað eykur skilvirkni, veitir betri yfirsýn og einfaldar samskipti.
Lögmenn geta stofnað dómsmál í kerfinu og veitt skjólstæðingum og lögmönnum gagnaðila aðgang.
Justikal er aðgengilegt í vöfrum á tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum, sem tryggir greiðan aðgang að málsgögnum hvar og hvenær sem er. OCR-leitarvirkni auðveldar leit í öllum framlögðum skjölum, og ef skjölin innihalda rafrænar undirskriftir eða innsigli, býður kerfið upp á eIDAS-vottaða staðfestingarþjónustu til að sannreyna gildi þeirra.
Kerfið stuðlar að betra skipulagi og auknu gagnsæi, sem skilar sér í betri þjónustu og sterkari tilfinningu skjólstæðingsins fyrir því að mál hans sé í öruggum höndum.