Þjónustuskilmálar
Eftirfarandi þjónustuskilmálar gilda frá og voru síðast uppfærðir 1. febrúar 2023.
Þetta skjal, þjónustuskilmálar Justikal, hefur að geyma skilmála sem gilda um notkun þína á vörunni okkar, þ.e. rafrænu réttarkerfi Justikal („þjónustan“). Þessir skilmálar eru lagalega bindandi samningur milli þín og Justikal, kt. 600617-1410, og því biðjum við þig að lesa þá vandlega.
Samþykki skilmála
Með því að fá aðgang að, skrá þig í og/eða nota þjónustuna okkar á einhvern hátt samþykkir þú að vera bundin/n af þessum þjónustuskilmálum, gagnavinnslusamningi, stefnu um ásættanlega notkun, persónuverndarstefnu og þeim frekari skilmálum sem þér kunna að vera kynntir í þjónustunni okkar og/eða á vefsvæðinu („skilmálarnir“).
Ef ekki er hægt að lesa einhver ákvæði þessara skjala á annan hátt en þann sem veldur ósamrýmanlegu misræmi á milli þeirra eða þeirra á meðal mun eftirfarandi forgangsröðun gilda við túlkun og beitingu ákvæða skilmálanna: (1) í fyrsta lagi, gagnavinnslusamningurinn; (2) í öðru lagi, persónuverndarstefnan; (3) í þriðja lagi, þessir þjónustuskilmálar; (4) í fjórða lagi, stefna um ásættanlega notkun. Til að forðast vafa skal tekið fram að skilmálarnir sem fyrst eru nefndir gilda framar þeim skilmálum sem síðar eru nefndar hér að ofan (til að mynda munu áskriftarskilmálar gilda framar sérstökum skilmálum).
Ef þú samþykkir þessa skilmála fyrir hönd lögaðila, eins og vinnuveitanda þíns eða fyrirtækisins sem þú starfar hjá, staðfestir þú að þú hafir lagalegt umboð til að skuldbinda þann aðila.
Eins og áður segir, með því að nota þjónustu okkar samþykkir þú að vera bundinn af og gangast undir lagalegan samning, þannig að ef þú samþykkir ekki þessa þjónustuskilmála, gagnavinnslusamninginn, stefnuna um ásættanlega notkun, persónuverndarstefnuna er þér ekki heimilt að nota þjónustuna. Ef þú samþykkir ekki einhverja þessara skilmála (þar á meðal þá frekari skilmála sem þér kunna að vera kynntir í þjónustu okkar og/eða á vefsvæðinu okkar) skaltu ekki skrá þig í eða nota neina þjónustu.
Ef eitthvað er óljóst bendum við þér á að hafa samband við Justikal á support@justikal.com áður en þú skráir þig í, gerist áskrifandi að eða byrjar að nota þjónustu okkar.
Skilgreiningar
- Eftirfarandi hugtök sem notuð eru í þessum þjónustuskilmálum og öðrum skjölum og falla undir skilgreiningu á hugtökum skulu hafa neðangreinda merkingu.
- JUSTIKAL ehf., einkahlutafélag sem er stofnað og starfar samkvæmt íslenskum lögum og er með lögheimili að Akralind 3, 200 Kópavogi, Íslandi, kennitala 600617-1410, virðisaukaskattsnúmer 131086.
Gögn um félagið eru geymd og þeim safnað af fyrirtækjaskrá á Íslandi. - Viðskiptavinur, þú, aðili. Hver sá einstaklingur eða lögaðili, þ.á.m. dómstólar, sem nota þjónustuna.
- “Viðskiptavinaögn” Öll gögn sem viðskiptavinur hleður upp eða lætur í té. Til að veita þjónustuna varðveitum við, vinnum og sendum þau skjöl og tengdar upplýsingar sem þú hleður upp. Þessi gögn eru aðeins unnin í samræmi við þau fyrirmæli sem þú (viðskiptavinur eða notandi) veitir. Við gegnum hlutverki gagnavinnsluaðila vegna þessara upplýsinga. Allar þessar upplýsingar eru geymdar og unnar innan Evrópusambandsins/Evrópska efnahagssvæðisins (ESB/EES).
- “Trúnaðarupplýsingar” Allar upplýsingar sem annar aðilinn fær frá eða aflar frá hinum (hvort sem er beint eða óbeint), þar með talið allar upplýsingar sem varða viðskipti, hugverkarétt, rekstur, kerfi, ferli, vörur, viðskiptaleyndarmál, þekkingu, samninga, fjármál, áform, áætlanir, núverandi, fyrrverandi eða væntanlega viðskiptavini, viðskiptavini, samstarfsaðila eða birgja hins aðilans (ásamt afritum af öllu ofangreindu) hvort sem slíkar upplýsingar eru merktar sem trúnaðarmál eða ekki, en að undanskildum upplýsingum sem eru: (i) aðgengilegar almenningi öðruvísi en vegna hvers kyns brots á þessum skilmálum; (ii) þegar kunnar þeim sem þær eru birtar við aðstæður þar sem ekki er óheimilt að miðla þeim til annarra; (iii) var aflað á sjálfstæðan hátt af þeim sem þær eru birtar við aðstæður þar sem ekki er óheimilt að miðla þeim til annarra; eða (iv) sem urðu til óháð og án tilvísunar í neinar trúnaðarupplýsingar sem veittar eru.
- “Neytandi” Einstaklingur sem notar þjónustuna í tilgangi sem tengist ekki viðskiptum, rekstri, iðn eða starfsgrein viðkomandi einstaklings.
- "Þjónusta" Þjónusta fyrir viðskiptavini (og notendur) sem er fólgin í því að meðhöndla lögfræðileg skjöl á öruggan hátt með því að nota traustþjónustu fyrir notendastaðfestingu, aðgangsstýringu, framlagningu dómskjala fyrir dómstólum og vinna skilvirkt með viðeigandi aðilum.
- "Hugverkaréttur" Allur hugverkaréttur eins og höfundarréttur og önnur höfundarverk (skýjavörur, tæknilausnir, uppfærslur, gögn, gagnagrunnar, högun kóða og frumkóðinn sjálfur, hugbúnaðarforrit, greinar og útgefin rit o.s.frv.) sem og hugverk á sviði iðnaðar (vörumerki, einkaleyfi, hönnun, viðskiptaleyndarmál o.s.frv.) og öll fjárhagsleg og sæmdarréttindi sem þeim tengjast.
- "GDPR-reglugerðin" Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 frá 27. apríl 2016 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga og niðurfellingu tilskipunar 95/46/EB (almenna persónuverndarreglugerðin).
- "Persónuupplýsingar" Upplýsingar sem varða auðkenndan eða auðkennanlegan einstakling.
- "Notandi" Einstaklingur sem hefur verið veitt heimild til að nota notandaaðganginn fyrir hönd viðskiptavinar.
- "Skilmálar" Nýjasta útgáfan af þessum þjónustuskilmálum, gagnavinnslusamningnum, stefnunni um ásættanlega notkun, persónuverndarstefnunni og þeim frekari skilmálum sem þér kunna að vera kynntir í þjónustunni okkar og/eða á vefsvæðinu okkar.
- "Aðgerðir" Hvers kyns upphleðsla, geymsla, stjórnun, skjalavistun, notkun rafrænna undirskrifta og innsigla, staðfesting, notkun á verkfærum til að innleiða ferla (deiling skjala) og hvers kyns aðrar aðgerðir sem framkvæmdar eru við notkun þjónustunnar sem gætu verið háðar sérstökum kvóta og viðeigandi gjöldum.
- "eIDAS-reglugerð" Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 910/2014 frá 23. júlí 2014 um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti á innri markaðinum og um niðurfellingu á tilskipun 1999/93/EB.
- "Vefsvæði" Vefsvæði Justikal sem er aðgengilegt á slóðinni https://justikal.com/.
Veiting þjónustu
Með því að nota þjónustuna og með því skilyrði að þú hlítir skilmálunum: (i) veita Justikal og leyfisveitendur okkar þér takmarkaðan, persónulegan, óframseljanlegan, afturkallanlegan rétt sem ekki er einkaréttur til að nota og/eða fá aðgang að þjónustunni; og (ii) þú samþykkir að fjölfalda ekki, dreifa, búa til afleidd verk úr, sýna opinberlega, flytja opinberlega, veita leyfi að, selja og/eða endurselja efni, hugbúnað, vörur og/eða þjónustu sem fæst úr og/eða í gegnum þjónustuna nema að fengnu skriflegu leyfi Justikal. Vörumerki okkar, svo sem firmamerki og skrásett vörumerki, má aðeins nota af þriðja aðila ef skriflegt samþykki frá okkur hefur verið fengið fyrir slíka notkun í ritum og á vefsíðum. Hvorki skilmálarnir né aðgangur þinn að og/eða notkun á þjónustunni framselja til þín og/eða þriðja aðila nein réttindi, eignarrétt og/eða hlutdeild í hugverkaréttindum sem tengjast þjónustunni.
Þjónusta okkar og leyfisveitenda okkar er vernduð af viðeigandi hugverkalögum, þar á meðal höfundarréttarlögum ESB og alþjóðlegum samningum. Með fyrirvara um þau takmörkuðu réttindi sem eru sérstaklega veitt samkvæmt skilmálum þessum einungis í því skyni að nota þjónustuna áskilja Justikal og/eða þriðju aðila veitendur, leyfisveitendur og birgjar þess sér allan rétt, eignarrétt og hlutdeild í og að þjónustunni, þar með talið án takmarkana öll tengd hugverkaréttindi á heimsvísu. Þér eru ekki veitt nein réttindi samkvæmt skilmálum þessum nema það sé sérstaklega tekið fram í skilmálum þessum.
Með því að skrá þig hjá Justikal eða skrá þig til að nota þjónustuna samþykkir þú að við kunnum að senda þér (þar á meðal með tölvupósti) upplýsingar um þjónustuna, svo sem: (a) tilkynningar um notkun þína á þjónustunni, þar á meðal tilkynningar um brot á notkun; (b) uppfærslur á þjónustunni og nýja eiginleika eða vörur; (c) upplýsingar um mál sem þú hefur aðgang að í þjónustunni. Með skýru fyrirfram samþykki þínu kunnum við einnig að senda þér upplýsingar og efni til að kynna vörur og þjónustu Justikal.Tilkynningar sem eru sendar þér með tölvupósti teljast veittar og mótteknar þegar tölvupósturinn er sendur.
Við munum gera það sem í valdi okkar stendur til að gera þjónustuna aðgengilega notendum allan sólarhringinn, 7 daga vikunnar, að undanskildum fyrirhuguðum niðritímum (sem notendum verður tilkynnt um fyrirfram). Samkvæmt skilmálum þessum tökum við hins vegar ekki á okkur neina ábyrgð eða skyldu til að tryggja neinn tiltekinn uppitíma, þjónustustig eða viðbragðstíma.
Við berum ekki ábyrgð vegna nokkurs misbrests eða tafar á efndum á skyldum okkar samkvæmt skilmálum þessum sem stafa af öðrum aðgerðum eða atburðum sem við fáum ekki stjórnað með eðlilegum ráðum, þ.m.t. ef þjónustan verður óaðgengileg vegna þess að þjónusta þriðja aðila verður ótiltæk eða vegna netvandamála eða sambandsleysis.
Við ábyrgjumst ekki eða veitum nokkra aðra vissu fyrir því að inntak eða virkni þjónustunnar muni uppfylla kröfur þínar eða að starfsfólk þitt muni ná nokkurri færni með því að nota þjónustuna okkar. Að því marki sem rekstur þjónustunnar er háður þáttum sem við fáum ekki stjórnað með eðlilegum ráðum ábyrgjumst við ekki eða veitum nokkra aðra vissu fyrir því að rekstur þjónustunnar verði án truflana eða hnökralaus.
Nema annað sé tekið fram er þjónustan veitt „eins og hún er“ án ábyrgðar af neinu tagi, hvort heldur er beinnar eða óbeinnar, þar með talið hvers kyns óbeinnar ábyrgðar um söluhæfi og hæfi til tiltekinna nota. Áður en þú notar þjónustuna okkar skaltu þess vegna vinsamlegast ganga úr skugga um að þú sért ánægð(ur) með virkni og eiginleika þjónustunnar og vitir hvaða eiginleika þjónustunnar þú þurfir svo þú getir tekið upplýsta ákvörðun um hvort þú viljir nota þjónustuna eða ekki. Öll áhættan varðandi gæði, nákvæmni, fullnægjanleika, heilleika, gjaldmiðil, réttleika eða gildi hvers kyns upplýsinga, gagna eða efnis sem notandi veitir í gegnum þjónustuna hvílir á notandanum.
Við erum stöðugt að innleiða nýjungar, breyta og bæta þjónustuna. Við höldum réttinum til að breyta þjónustu okkar hvenær sem er með því að stækka eða þrengja umfang hennar, bæta við nýrri virkni, uppfæra notendaviðmót eða breyta þjónustunni á annan hátt án þíns leyfis.
Ef um er að ræða breytingar sem hafa mikilvæg neikvæð áhrif á þjónustuna munum við sýna viðskiptalega sanngjarna viðleitni til að upplýsa þig um þær í gegnum þjónustuna og/eða með öðrum rafrænum samskiptaleiðum.
Hvað varðar breytingar á þjónustunni sem við þurfum að gera til að uppfylla öryggis-, laga- eða reglugerðarkröfur er hugsanlegt að getum ekki tilkynnt þér um þær fyrirfram.
Þú átt rétt á að segja þjónustunni upp hvenær sem er eins og tilgreint er í þessum skilmálum. Áframhaldandi notkun þín á þjónustu okkar eftir að slíkar breytingar öðlast gildi felur í sér bindandi samþykki þitt á slíkum breytingum.
Við gætum ýtrasta trúnaðar um viðskiptavinagögn (sem þú hefur hlaðið upp). Okkur ber engin skylda til að fylgjast með efni sem hlaðið er upp í gegnum þjónustuna. Þess vegna munum við ekki opna, athuga eða lesa nein viðskiptavinagögn. Við megum aðeins gera það í mjög sérstökum og afar takmörkuðum tilvikum eins og tilgreint er í grein 7.5 í þessum skilmálum. Í ljósi eðli þjónustunnar verður aðgangi að tilteknum viðskiptavinagögnum hins vegar stýrt af mismunandi viðskiptavinum og/eða notendum á grundvelli hvers tilviks fyrir sig. Þegar notandi stofnar mál ákveður hann til dæmis hvaða aðilar eigi að fá aðgang að málinu og einnig hvers konar aðgang (aðgang til að setja inn gögn, lesaðgang eða engan aðgang). Þegar málið hefur verið samþykkt af dómstólnum og staða málsins er „í vinnslu“ þá stjórnar dómstóllinn aðgangi að viðkomandi máli. Til að fá frekari og ítarlegar upplýsingar um aðgangsrétt að viðskiptavinagögnum bendum við þér á að lesa vandlega leiðbeiningarnar á vefsvæðinu okkar.
Viðskiptavininum er einnig óheimilt að hlaða upp, birta, senda eða á annan hátt gera aðgengilegt í gegnum þjónustuna allt efni ef viðskiptavinurinn veit eða ætti að vita með sanngirni að slík aðgerð sé ólögleg að teknu tilliti til eðlis þjónustunnar.
Ennfremur skal viðskiptavinurinn ekki (i) hlaða upp, birta, senda eða á annan hátt gera aðgengilegt efni eða upplýsingar sem ætlað er að trufla, eyðileggja eða takmarka virkni nokkurs tölvuhugbúnaðar eða vélbúnaðar eða fjarskiptabúnaðar; (ii) bakhanna, breyta, aðlaga eða hjakka þjónustuna eða á annan hátt reyna að fá óheimilan aðgang að þjónustunni eða tengdum kerfum eða netum hennar; (iii) nota þjónustuna í bága við gildandi lög; eða (iv) fá aðgang að þjónustunni í þeim tilgangi að þróa samkeppnishæfa vöru eða kerfi.
Okkur er heimilt, alfarið að eigin ákvörðun, að afturkalla eða synja hverjum þeim notanda um aðgang sem brýtur gegn eða kann samkvæmt sanngjörnu viðskiptalegu mati okkar að brjóta gegn ákvæðum greina 3.13, 3.14. Viðskiptavinurinn viðurkennir og samþykkir að hvers kyns brot á skilmálum af hálfu einhverra notenda hans verði álitið brot af hálfu viðskiptavinarins. Viðskiptavinur ber því fulla ábyrgð á því að veita notendum sínum allar upplýsingar um þjónustuna, veitingu hennar, virkni, ásættanlega notkun og/eða önnur skilyrði sem kveðið er á um í skilmálunum.
Þjónustan okkar virkar með flestum nýjustu útgáfum af vinsælustu netvöfrunum. Þjónustan mun hins vegar hvorki virka með né styðja Internet Explorer. Nánari upplýsingar um vélbúnaðar- og hugbúnaðarkröfur til að nota þjónustuna er að finna á vefsvæðinu okkar.
Hvað varðar ákvæði greina 3.13, 3.14 þessara skilmála skal viðskiptavinurinn verja og veita þjónustuveitandanum skaðleysi gegn sérhverri „kröfu sem nýtur skaðleysis“, en með því er átt við hvers kyns kröfu þriðja aðila, málshöfðun eða málsmeðferð sem stafar af, tengist eða byggir á fullyrðingu um:
(i) brot á höfundarrétti, vörumerki, viðskiptaleyndarmáli, persónuvernd eða trúnaðarrétti með skriflegu efni, myndum, firmamerkjum eða öðrum viðskiptavinagögnum sem hlaðið er upp í gegnum þjónustuna;
(ii) að notkun þjónustunnar í gegnum aðgang viðskiptavinarins áreiti, rægi eða svíki þriðja aðila eða brjóti í bága við gildandi lög;
(iii) afhjúpun eða birtingu á persónugreinanlegum upplýsingum eða öðrum einkaupplýsingum sem veittar eru í gegnum þjónustuna með aðgangi viðskiptavinarins (hvort sem slíkar upplýsingar tilheyra viðskiptavininum, einhverjum viðskiptavini eða notanda viðskiptavinarins eða öðrum þriðju aðilum);
(iv) hvers kyns tap á eða tjón á raunverulegum eða áþreifanlegum persónulegum eignum af völdum aðgerða eða aðgerðaleysis viðskiptavinar eða einhverra umboðsmanna hans, undirverktaka eða starfsmanna.
Þessi skaðleysisskylda er háð því að þú fáir (i) tafarlausa skriflega tilkynningu um slíka kröfu (eða í öllu tilfelli tilkynningu með nægum fyrirvara þannig að þú getir brugðist við tímanlega); (ii) einkarétti til að stjórna og stýra rannsókn, vörn eða sáttaumleitan um slíka kröfu og (iii) allri nauðsynlegri samvinnu okkar á milli á þinn kostnað.
Verð og greiðsluskyldur
Við bjóðum bæði gjaldfrjálsa þjónustu og þjónustu sem greiða skal fyrir. Ef þú ákveður að gerast áskrifandi að þjónustu sem greiða skal fyrir samþykkir þú að greiða þau gjöld sem þér eru gefin upp þegar þú kaupir tiltekna þjónustu.
Verð, eiginleikar, gagnageymslugeta, takmarkanir og önnur virkni þjónustunnar fer eftir þjónustunni sem þú velur sem og hvers kyns breytingum sem þú átt frumkvæði að. Þú getur séð verðin með skýrum hætti í þjónustunni okkar áður en þú gerist áskrifandi að þjónustu.
Með því að gerast áskrifandi að þjónustunni veitir viðskiptavinurinn Justikal fullt leyfi til að gjaldfæra kreditkortið sem við höfum á skrá, eða til að nota aðra samþykkta greiðslumáta fyrir rukkun gjalda sem viðskiptavinurinn hefur veitt heimild fyrir. Viðskiptavinurinn ber ábyrgð á að veita Justikal gilda greiðslumáta fyrir aðgang sem greiða skal fyrir. Ekki þarf að veita greiðsluupplýsingar fyrir gjaldfrjálsa þjónustu notenda.
Viðskiptavinurinn ber ábyrgð á öllum gjöldum, þ.m.t. sköttum, sem tengjast notkun hans á þjónustunni. Með því að nota þjónustuna samþykkir viðskiptavinurinn að greiða Justikal alla viðeigandi skatta vegna notkunar viðskiptavinarins á þjónustunni.
Fyrir mánaðarlegar áskriftir verður reikningstímabilið einn mánuður (30 nettó) frá fyrsta almanaksdegi hvers mánaðar og endurnýjast sjálfkrafa nema málinu (sem þjónustan var keypt fyrir) sé lokið. Viðskiptavinurinn skal greiða hvern slíkan reikning eigi síðar en á þeim eindaga sem tilgreindur er í þeim reikningi, að því tilskildu að viðkomandi reikningur sé viðeigandi og rétt útgefinn reikningur. Öllum reikningum sem Justikal gefur út skal fylgja nægilega nákvæm sundurliðun á því sem rukkað er fyrir. Vanskil á greiðslum fyrir þjónustuna skulu safna vöxtum sem nema 0.02% fyrir hvern dag sem greiðsla dregst reiknað af hinni ógreiddu skuld. Vextir skulu sjálfkrafa reiknast frá fyrsta degi vanskila. Okkur er ekki skylt að veita þér frekari tilkynningu og/eða viðvörun um að vextir verði reiknaðir á vanskil.
Ef einhver gjöld sem viðskiptavinur skuldar okkur (að undanskildum fjárhæðum sem deilt er um með sanngirni og í góðri trú) hafa verið í vanskilum í þrjátíu (30) daga eða lengur getum við, án þess að takmarka önnur réttindi og úrræði okkar, takmarkað alla þjónustu sem greiða skal fyrir þar til skuldin hefur verið greidd að fullu, svo framarlega sem við höfum tilkynnt viðskiptavininum með tíu (10) daga eða lengri fyrirvara að aðgangur hans sé í vanskilum.
Við ábyrgjumst ekki eða tryggjum að nokkur verð verði í boði til frambúðar og áskiljum okkur rétt til að breyta verðum eða eiginleikum og valkostum verðlagningar okkar fyrirvaralaust. Verðbreytingar verða tilkynntar innan 30 daga frá gildistöku þeirra og gilda sjálfkrafa um áskriftir sem þá eru í gildi.
Áskrift þín hættir þegar málið sem þú hefur stofnað í þjónustunni fær stöðuna „Lokið“. Með því að samþykkja þessa skilmála staðfestir þú skilning þinn á því að eftir að þú hefur greitt fyrir þjónustuna teljist hún hafa verið veitt þér að fullu án tafar. Þess vegna átt þú ekki rétt á neinni endurgreiðslu eða inneign fyrir hluta verðsins. Ef þú ert neytandinn staðfestir þú einnig skilning þinn á því að eftir að þú hefur greitt fyrir þjónustuna verður litið svo á að veiting þjónustunnar hefjist tafarlaust með fyrirfram samþykki þínu og þú viðurkennir að þú munt missa rétt þinn til afturköllunar (ef þú nýtur slíks réttar samkvæmt gildandi lögum).
Persónuupplýsingar
Við vinnum persónuupplýsingar í samræmi við kröfur GDPR-reglugerðarinnar og annarra viðeigandi lagagerninga, svo sem laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Persónuverndarstefnan okkar útskýrir ítarlega hvernig og í hvaða tilgangi við söfnum, notum, varðveitum, miðlum og verndum upplýsingarnar sem þú veitir okkur. Með því að samþykkja þessa skilmála staðfestir þú að þú hafir lesið og samþykkir að vera bundin/n af skilmálum persónuverndarstefnu okkar.
Takmörkun ábyrgðar
Þjónustuveitandi skal aðeins bera einkaréttarábyrgð ef sök er til staðar.
Við tökum ekki á okkur neina ábyrgð sem stafar af eða tengist þessum skilmálum vegna taps á notkun, glataðra eða ónákvæmra upplýsinga, tapaðs hagnaðar, bilunar í öryggiskerfum, truflunar á rekstri, kostnaðar vegna tafa eða hvers kyns óbeins, sérstaks, tilfallandi eða afleidds tjóns af hvaða tagi sem er, jafnvel þótt upplýst sé um möguleika á slíku tjóni fyrirfram.
Nema á annan veg sé mælt í þessum skilmálum berum við ekki ábyrgð á nokkru tapi eða tjóni viðskiptavinarins eða notenda hans sem stafar eða orsakast, í heild eða að hluta, af (i) notkun eða beitingu viðskiptavinar eða notenda hans á þekkingu sem aflað er með þjónustunni, (ii) hvers kyns tölvuveiru sem ekki er upprunnin í þjónustunni, eða (iii) hvers kyns óheimilli notkun viðskiptavinarins eða einhvers af notendum hans á þjónustunni eins og lýst er í þessum skilmálum.
Samanlögð ábyrgð okkar gagnvart viðskiptavininum sem stafar af eða tengist þessum skilmálum mun ekki vera hærri en sú fjárhæð sem þú hefur raunverulega greitt okkur samkvæmt þessum skilmálum á síðustu 12 (tólf) mánuðum fram að kröfunni. Þar sem við bjóðum upp á bæði gjaldfrjálsa og greidda þjónustu viðurkennir þú að samanlögð ábyrgð okkar verður takmörkuð við núll ef þú notar þjónustuna gjaldfrjálst og því munum við ekki bæta nokkurt tjón nema um sé að ræða tjón sem stafar af vísvitandi misferli eða stórfelldu gáleysi okkar eins og lýst er í grein 6.6.
Þú samþykkir að þær undanþágur og takmarkanir sem tilgreindar eru í 6. grein eigi við óháð því formi aðgerða sem gripið er til, hvort sem þær byggja á kröfu innan eða utan samninga (þar á meðal vegna vanrækslu), hlutlægri ábyrgð eða öðrum grundvelli og munu gilda jafnvel þótt einhver þeirra takmörkuðu úrræða sem tilgreind eru í þessum skilmálum teljist ekki hafa þjónað megintilgangi sínum.
Ekkert í þessum skilmálum skal útiloka eða á nokkurn hátt takmarka ábyrgð okkar á tjóni sem stafar af vísvitandi misferli (ásetningi) eða stórfelldu gáleysi. Ábyrgð okkar takmarkast heldur ekki í öðrum tilvikum að því marki sem afdráttarlaus viðmið gildandi laga banna slíka takmörkun með skýrum hætti.
Eignarréttur
Við og leyfisveitendur okkar höfum og höldum öllum réttindum, eignarrétti og hlutdeild í hugverkum okkar sem notuð eru til að veita þjónustuna. Þjónusta okkar telst vera hugbúnaður sem þjónusta (Software as a Service, SaaS) og hún er boðin á grundvelli takmarkaðs aðgangs og án einkaréttar; viðskiptavininum er ekki í látinn í té neinn eignarréttur og/eða hugverkaleyfi, óháð notkun hugtaka eins og „kaup“ eða „sala“. Hugverk okkar má aðeins nota af þriðja aðila ef skriflegt samþykki frá okkur hefur verið fengið fyrir slíkri notkun áður en þau eru notuð í nokkrum tilgangi.
Við eigum einnig öll samantekin tölfræðileg gögn sem fengin eru með rekstri þjónustunnar, þar með talið, án takmarkana, gögn um fjölda og tegundir allra aðgerða og hvers kyns önnur tölfræðileg gögn sem tengjast notkun þjónustu okkar sem og árangursniðurstöður fyrir þjónustuna. Ekkert í skilmálum þessum skal túlkað þannig að það banni okkur að nota slíkar samanteknar tölfræðilegar upplýsingar í þeim tilgangi að reka fyrirtæki okkar, að því tilskildu að notkun okkar á samanteknum tölfræðilegum upplýsingum muni ekki afhjúpa persónulegar upplýsingar og/eða upplýsingar sem auðkenna tiltekinn viðskiptavin fyrir þriðja aðila.
Okkur er aðeins heimilt að auðkenna þig sem viðskiptavin okkar á vefsvæði okkar og/eða í öðru markaðsefni að fengnu leyfi þínu. Að fengnu slíku leyfi er okkur einnig heimilt að birta vörumerki þín, þjónustumerki og/eða firmamerki í markaðsefni okkar til að auðkenna þig sem viðskiptavin.
Öll viðskiptavinagögn teljast vera einkaeign viðskiptavinarins með óafturkallanlegum hætti. Við föllum frá öllum kröfum að viðskiptavinagögnum með óafturkallanlegum hætti.
Við munum gera eðlilegar ráðstafanir til að tryggja að enginn hafi aðgang að viðskiptavinagögnum og að enginn athugi þau, þar á meðal við. Okkur ber engin skylda til að fylgjast með efni sem hlaðið er upp í gegnum þjónustuna. Aðeins í undantekningartilvikum (t.d. þegar dómsúrskurður og/eða úrskurður lögbærs yfirvalds er gefinn út) eða ef þess er beinlínis krafist af viðskiptavinum svo hægt sé að veita nauðsynlega tækniaðstoð er tilteknu starfsfólki sem lýtur strangri trúnaðarskyldu sem miðast við vitneskjuþörf heimilt að fá aðgang að viðskiptavinagögnum. Slíkur aðgangur skal þó vera mjög takmarkaður og aðeins veittur að því marki sem nauðsyn krefur.
Okkur er aðeins heimilt að miðla viðskiptavinagögnum að því marki sem það er skylt samkvæmt lögum eða dómsúrskurði, en við munum sýna viðskiptalega sanngjarna viðleitni til að láta þig vita sé það heimilt.
Breytingar
Nýjasta útgáfan af öllum skjölum skilmálanna fylgir þessum þjónustuskilmálum og einnig er hægt að nálgast þau á vefsvæði okkar. Við áskiljum okkur þó rétt til að breyta þessum skilmálum hvenær sem er alfarið að eigin ákvörðun.
Við munum tilkynna þér um allar breytingar á skilmálunum með því að birta uppfærða skilmála á vefsvæðinu og/eða í þjónustunni og við munum breyta „uppfært“ dagsetningunni hér að ofan. Það er á þína ábyrgð að skoða skilmálana reglulega og fylgjast með öllum breytingum á þeim. Við kunnum einnig að veita þér frekari tilkynningar um breytingar og/eða uppfærslur eftir því sem við á miðað við aðstæður, þar á meðal en ekki einskorðað við að senda þér tölvupóst sem upplýsir þig um breytingarnar og/eða með því að birta tilkynningu um breytingarnar á áberandi hátt á vefsvæðinu og/eða í þjónustunni.
Áframhaldandi notkun þín á þjónustu okkar eftir að slíkar breytingar öðlast gildi felur í sér bindandi samþykki þitt á slíkum breytingum. Vinsamlegast skoðaðu þessa skilmála á netinu (með því að nota hlekkina sem veittir eru í þessum skilmálum) reglulega til að athuga hvort einhverjar breytingar hafi orðið.
Óviðráðanleg atvik
Við berum enga ábyrgð vegna misbrests eða tafar á að efna skuldbindingar vegna atvika sem aðili fær ekki ráðið við með eðlilegum ráðum, sem geta meðal annars verið atlögur að þjónustumiðlun, bilun hjá þriðja aðila hýsingaraðila eða þjónustuveitanda, verkföll, vöruskortur, óeirðir, eldsvoðar, guðsverk, stríð, hryðjuverk, heimsfaraldur og aðgerðir stjórnvalda.
Gildandi lög
Þjónustuskilmálar þessir skulu gerðir og túlkaðir samkvæmt íslenskum lögum. Aðilar skulu freista þess að ná sátt um hvers konar ágreining og deilur sem upp kunna að koma milli viðskiptavinarins og þjónustuveitanda varðandi þessa þjónustuskilmála. Náist ekki sátt skal leyst úr öllum óleystum deilum, ágreiningi og kröfum sem rísa af eða tengjast þjónustuskilmálum þessum, broti þeirra, riftun eða gildi fyrir þar til bærum dómstólum á Íslandi.
Ef þú ert neytandi frá landi innan ESB og þjónustu okkar er beint til þíns lands í skilningi 1. og 2. mgr. 6. gr. Rómareglugerðar I og með þeim skilyrðum sem sett eru fram í því ákvæði getur neytandi einnig notið verndar þeirra ófrávíkjanlegu ákvæða laga sem ættu við ef ekki væri fyrir hendi ákvæðið í grein 10.1.
Sjálfstætt gildi einstakra ákvæða
Þessir skilmálar gilda að því marki sem framast er heimilt samkvæmt gildandi lögum. Ef dómstóll úrskurðar að við megum ekki framfylgja hluta þessara skilmála eins og þeir eru settir fram munum þú og við skipta þeim skilmálum út fyrir svipaða skilmála sem heimilt er að framfylgja samkvæmt gildandi lögum, en önnur ákvæði þessara skilmála haldast í gildi.
Uppsögn
Þessir skilmálar taka gildi frá og með deginum sem þú byrjaðir að nota þjónustuna og/eða gerðist áskrifandi að þjónustunni.
Áskriftin þín hættir þegar málið sem þú hefur stofnað í þjónustunni fær stöðuna „Lokið“.
Þú getur valið að hætta að nota þjónustuna og segja þessum skilmálum upp (þar á meðal öllum áskriftum) hvenær sem er af hvaða ástæðu sem er með skriflegri tilkynningu til okkar (uppsögn til hægðarauka), en við slíka uppsögn (i) átt þú ekki rétt á endurgreiðslu af fyrirframgreiddum gjöldum og (ii) ef þú hefur ekki þegar greitt öll viðeigandi gjöld fyrir þágildandi áskriftartíma eða tengt þjónustutímabil (eftir því sem við á) munu öll slík gjöld sem eru ógreidd umsvifalaust falla í gjalddaga.
Hvor aðili getur sagt þessum skilmálum upp (þar á meðal öllum tengdum áskriftum) ef hinn aðilinn (a) bætir ekki úr mikilvægu broti gegn þessum skilmálum innan þrjátíu (30) daga frá tilkynningu; (b) hættir rekstri án arftaka; eða (c) leitar verndar samkvæmt gjaldþrotameðferð, fjárvörslusamningi, samkomulagi við kröfuhafa, nauðasamningum eða sambærilegri málsmeðferð, eða ef slík meðferð er hafin gegn þeim aðila (og ekki vísað frá innan sextíu (60) daga frá því að hún er hafin). Við áskiljum okkur rétt til að stöðva þjónustuna umsvifalaust og án fyrirvara ef notandi fremur brot gegn þessum þjónustuskilmálum eða brýtur gegn stefnu okkar um ásættanlega notkun.
Við áskiljum okkur rétt til að hætta veitingu þjónustunnar eða fela þriðja aðila að veita þjónustuna í stað okkar með því að tilkynna viðskiptavinum það með minnst 6 mánaða fyrirvara. Í slíku tilviki munu viðskiptavinir sem hafa keypt þjónustu sem framlengir uppsagnarfrestinn fá endurgreitt fyrir þá mánuði sem þjónustan var ekki veitt (ef þeir greiddu fyrir slíka þjónustu fyrirfram).
Ef frá eru taldir viðskiptavinir með virka áskrift áskiljum við okkur rétt til að stöðva þjónustuna og eyða notandaaðgangi þínum og öllum viðskiptavinagögnum þínum ef þú hefur ekki notað þjónustuna í meira en 12 mánuði samfleytt.
Áhrif uppsagnar. Þegar þessir skilmálar falla úr gildi eða þegar þeim er sagt upp verður þú að hætta að nota alla þjónustu og eyða (eða að beiðni okkar, skila) öllum trúnaðarupplýsingum sem þú hefur undir höndum, þar með talið á kerfum þriðja aðila sem rekin eru fyrir þína hönd. Þú munt ekki hafa aðgang að þjónustunni og viðskiptavinagögnum þínum (og við kunnum að eyða öllum viðskiptavinagögnum þínum nema það sé óheimilt að lögum) eftir að þessir skilmálar falla úr gildi út eða þeim er sagt upp (eða viðeigandi áskriftartíma) og því skaltu gæta þess að flytja viðskiptavinagögnin þín á gildandi áskriftartíma eða öðrum tíma sem þú notar þjónustuna með lögmætum hætti fram að uppsögn. Ef þú segir þessum skilmálum upp í samræmi við grein 12.4 (uppsögn af gildri ástæðu) munum við endurgreiða þér öll fyrirframgreidd gjöld sem ná til þess sem eftir er af þágildandi áskriftartíma eftir gildistökudag uppsagnar. Ef við segjum þessum skilmálum upp í samræmi við grein 12.4 (uppsögn af gildri ástæðu) þarft þú að endurgreiða öll ógreidd gjöld sem ná til þess sem eftir er af þágildandi áskriftartíma eftir gildistökudag uppsagnar. Uppsögn mun aldrei leysa þig undan skyldu þinni til að greiða þau gjöld sem ber að greiða okkur fyrir tímabilið fram að gildistökudegi uppsagnar.
Ef þú ert neytandinn staðfestir þú einnig skilning þinn á því að eftir að þú gerist áskrifandi að þjónustunni eða byrjar að nota þjónustuna hefst veiting þjónustunnar umsvifalaust með fyrirfram samþykki þínu og þú viðurkennir að þú munir missa rétt þinn til afturköllunar (ef þú nýtur slíks réttar samkvæmt gildandi lögum).
Hafa samband
Ef þú hefur einhverjar spurningar, áhyggjur eða kvartanir vegna þessara þjónustuskilmála geturðu haft samband við þjónustudeild okkar með því að senda tölvupóst á support@justikal.com. Við munum svara fyrirspurn þinni innan 30 daga.
Niðurhala skilmálum á PDF formi
Smelltu á hnappana hér að neðan til að sækja þýdda skilmála á íslensku eða upprunalega skilmála á ensku.