Almenni Lífeyrissjóðurinn sendir kröfulýsingar rafrænt með Justikal
Almenni lífeyrissjóðurinn hefur samið við íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Justikal um að nýta stafræna lausn Justikal við innheimtuferli hjá sjóðnum.
Alþingi hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra um ýmsar breytingar á lögum um meðferð einkamála sem tóku gildi 1.júlí síðastliðinn. Eitt megin markmið lagabreytinganna var að gera réttarvörslukerfið einfaldara, notendavænna og stuðla að jákvæðum umhverfisáhrifum, svo sem með því að skapa forsendur fyrir að draga úr ferðalögum og notkun pappírs. Auk þess var lögum um gjaldþrotaskipti breytt, sem gerir það að verkum að nú er heimilt að senda kröfulýsingar í þrotabú með stafrænum hætti.
„Við hjá Almenna lífeyrissjóðnum erum ánægð að geta nýtt okkur lausn Justikal við innheimtuferli hjá sjóðnum. Með samstarfi við Justikal tekst sjóðnum að stuðla að bæði skilvirkara og á sama tíma öruggara ferli. Framfarir af þessum toga eru mikilvægar í þeirri vegferð sem við leitumst við að fylgja, sem er að veita sjóðfélögum okkar framúrskarandi þjónustu.“
Sigríður Ómarsdóttir, Skrifstofustjóri Almenna Lífeyrissjóðsins
“Við erum mjög spennt að geta boðið markaðnum að nýta þjónustu okkar fyrir kröfulýsingar í þrotabú. Markaðurinn hefur tekið eiginleikanum fyrir öruggar gagnasendingar mjög vel og nýtt hann m.a. til að birta stefnur, viðkvæm bréf, greiðsluáskoranir o.fl. Okkur hlakkar mikið til samstarfsins með Almenna lífeyrissjóðnum sérstaklega þar sem við deilum gildum um að veita okkar viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.”
Margrét Anna Einarsdótti, Framkvæmdastjóri Justikal
Nýjar fréttir
Nýr eiginleiki: Almenn mál
Notendur hafa nú tvo valkosti í kerfinu þegar þeir stofna ný mál:
Að stofna Almennt mál - Gerir notendum kleift að vinna að máli áður en það er tilbúið til innsendingar til dómstóla.
Að stofna Dómsmál - Gerir notendum kleift að stofna mál og senda öll gögn inn til dómstóla.
Nú geta fyrirtæki sett sitt útlit á öruggar rekjanlegar gagnasendingar í Justikal
Eftir samtöl við notendur kynnum við nú eftirfarandi breytingu á öruggum rekjanlegum gagnasendingum. Nú geta notendur bætt nafni, myndmerki og aðallit síns fyrirtækis í notendastillingum sínum.
Rafrænar kröfulýsingar í þrotabú
Breytingin á lögunum um gjaldþrotaskipti hefur ekki verið áberandi í umræðunni en nú er loksins heimilt að senda kröfulýsingar í þrotabú með rafrænum hætti.