01 Jul 2026

Verðlækkun á Öruggum rekjanlegum gagnasendingum

Share

Verðlækkun á Öruggum rekjanlegum gagnasendingum

Grunnverð á Öruggum rekjanlegum gagnasendingum hefur verið lækkað verulega eða úr 1.950 kr. í 340 kr. fyrir hverja sendingu.

Við höfum endurskipulagt virkni þjónustunnar til þess að mismunandi eiginleikar mæti betur ólíkum þörfum viðskiptavina eftir notkun. Breytingin felur í sér að við getum boðið grunnþjónustuna 83% ódýrari og haft aðra viðbótareiginleika valkvæða fyrir hverja sendingu. Viðskiptavinir geta því valið þá þjónustu sem hentar hverri sendingu.

Verð fyrir valkvæða eiginleika eru eftirfarandi:

  • PDF móttökuvottorð með rafrænu innsigli: 950 kr.
  • SMS tilkynning: 25 kr.
  • Fullgild rafræn undirritun: 350 kr.

Þannig greiða viðskiptavinir aðeins fyrir þá þjónustu sem þeir þurfa hverju sinni, á sama tíma og áfram er hægt að bæta við þeim öryggis- og staðfestingarþáttum sem henta hverri sendingu.

Fyrir fyrirtæki og stofnanir sem senda mikið magn skjala bjóðum við jafnframt upp á magnafslátt. Verð eftir sendingamagni má sjá með því að smella hér.

Samhliða þessari breytingu bjóðum við nú einnig upp á API vefþjónustu sem gerir fyrirtækjum kleift að samþætta Öruggar rekjanlegar gagnasendingar beint við eigin málaskrár-, innheimtu- eða skjalakerfi. Með samþættingunni er hægt að sjálfvirkja sendingar, eftirfylgni & áminningar, fylgjast með stöðu þeirra og sækja niðurstöður beint úr eigin kerfi, sem einfaldar vinnuferla og sparar tíma.

Með þessari nýju verðlagningu teljum við Öruggu rekjanlegu gagnasendingar Justikal verða enn samkeppnishæfari valkost við hefðbundnar póstsendingar. Ekki aðeins fyrir ábyrgðarbréf heldur einnig fyrir almennar bréfasendingar þar sem öryggi, rekjanleiki og staðfest afhending skipta máli.

Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.