26 May 2025

Justikal er nú á skrá yfir viðurkennda póstþjónustuaðila hjá Byggðastofnun

Share

Hverju vorum við að breyta

Justikal hefur skráð þjónustuna fyrir Öruggar rekjanlegar gagnasendingar sem póstþjónustu hjá Byggðastofnun, í samræmi við lög um póstþjónustu nr. 98/2019. Umsóknarferlið tók um það bil einn mánuð, þar sem Byggðastofnun þurfti að fá staðfest að þjónustan væri í samræmi við lögin og að afhending póstsendinga væri tryggð á fullnægjandi hátt. Skráningin var liður í því að bregðast við úrskurði Héraðsdóms Suðurlands í máli nr. Y-697/2024.

Ástæðan fyrir skráningunni er fyrst og fremst sú að gera notendum m.a. kleift að birta greiðsluáskoranir með stafrænum hætti. En eins og áður segir þá hefur þjónustan hlotið skráningu og heimild hjá Byggðastofnun Íslands sem póstþjónusta sem þýðir með öðrum orðum að nú er heimilt að senda ábyrgðarbréf með þjónustunni.

Í lögum um aðför segir í 2. mgr. 7. gr laganna að greiðsluáskorun skal send gerðarþola með ábyrgðarbréfi eða símskeyti eða birt honum af einum stefnuvotti.

Þar sem hægt er senda ábyrgðarbréf með öruggu rekjanlegu gagnasendingarþjónustu Justikal, þá er umræddum kröfum laganna mætt. Til að gefa notendum innsýn í hvaða tilfellum lög kveða á um að heimilt sé að birta efni með ábyrðgarbréfi þá eru hér nokkur dæmi:

  • Lög um aðför nr. 90/1989: Í 7. gr. er kveðið á um að greiðsluáskorun skuli senda gerðarþola með ábyrgðarbréfi eða símskeyti eða birt honum af einum stefnuvotti.
  • Hjúskaparlög nr. 31/1993: Í 131. gr. er kveðið á um að úrskurð stjórnvalds skuli senda aðilum máls með ábyrgðarbréfi.
  • Lög um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991: Í 44. gr. er kveðið á um að umsjónarmaðurinn skuli senda lánardrottnum tilkynningu í ábyrgðarbréfi eða á annan jafntryggan hátt.
  • Lög um hönnun nr. 46/2001: Í 44.gr. er kveðið á um tilkynningarskyldu vegna málshöfðunar er varðar skráða hönnun.
  • Lög um olíugjald og kílómetragjald nr. 87/2004: Í 17. gr. er kveðið á um að úrskurður ríkisskattstjóra skuli tilkynna í ábyrgðarbréfi.
  • Barnalög nr. 76/2003: Í 70. gr. er kveðið á um að móttekið ábyrgðarbréf teljist ávallt nægileg birting tilkynningar.
  • Lög um einkaleyfi nr. 17/1991: Í Í 63. gr. er kveðið á um að málshöfðun skuli tilkynnt nytjaleyfishöfum með ábyrgðarbréfi. Í 73. gr. er einnig vísað til afhendingar gagna eða greiðslu gjalda „í ábyrgðarpósti“.

Það sem skiptir mestu máli er að tryggt sé að tilkynningar, úrskurðir og önnur erindi komist til skila með sannanlegum hætti.

Einnig má nota umrædda þjónustu Justikal í fleiri tilvikum t.d. þegar kröfum er lýst í þrotabú eins og heimilað var með lögum nr. 53/2024 í júlí 2024, sbr. 2. mgr. 117. gr. laga nr. 21/1991.

Auk þess er tilvalið að nýta öruggu rekjanlegu gagnasendingarþjónustu Justikal í hverskyns sendingar þegar aðilar þurfa öryggi og traust fyrir því að skjal sé afhent tilteknum aðila og vilja afgreiða málið hratt.

Af hverju gerðum við breytinguna

Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands í máli nr. Y-697/2024: Í málinu var krafist ógildingar á ákvörðun sýslsumannsins á Suðurlandi um endursendingu aðfararbeiðni Festu-lífeyrissjóðs. Beiðnin laut að því að gera fjárnám vegna vangoldinna lífeyrisiðgjalda. Sýslumannsembættinu barst beiðnin, en hún var endursend á grundvelli þess að birting greiðsluáskorunar til þess aðila sem um ræddi teldist ófullnægjandi.

Festi-lífeyrissjóður reyndi ítrekað að birta aðila málsins bréf með stefnuvotti, en þar sem hann var ekki skráður á lögheimili reyndi stefnuvotturinn að hafa upp á honum á þar sem hann fannst fyrir, án árangurs. Þar sem ekki er heimilt að birta greiðsluáskoranir í Lögbirtingablaðinu leitaði Festi-lífeyrissjóður til Justikal til að reyna að koma bréfinu á framfæri við aðilann. Það tókst á 2 mín! Aðilinn auðkenndi sig með fullgildum rafrænum skilríkjum og þegar hann var búinn að því þá fyrst gat hann séð efni skjalsins. Allar þessar upplýsingar voru síðan staðfestar í staðfestingarskýrslu frá Justikal sem er rafrænt innsigluð með fullgildum tímastimpli sem sýndi og sannaði nákvæmlega hvenær aðilinn móttók skjalið.

Festa-lífeyrissjóður byggði á því að afhending greiðsluáskorunar með rafrænum hætti í gegnum Justikal ehf. hefði verið fullnægjandi og uppfyllti skilyrði 2. mgr. 7. gr. aðfararlaga nr. 90/1989. Sjóðurinn hélt því fram að rafræna afhendingin jafngilti afhendingu með ábyrgðarbréfi, þar sem hún var rekjanleg og viðtakandi staðfesti móttöku.

Dómurinn hafnaði kröfu Festu-lífeyrissjóðs um ógildingu ákvörðunar sýslumannsins. Í úrskurði sínum vísaði dómurinn til þess að rafræna afhendingin uppfyllti ekki skilyrði til að teljast til ábyrgðarbréf í skilningi laga, þar sem Justikal ehf. var ekki skráður póstrekandi samkvæmt lögum um póstþjónustu. Dómurinn taldi að ekki væri rými til að beita lögjöfnun, enda væri skýrt kveðið á um aðferðir við birtingu í 2. mgr. 7. gr. aðfararlaga.

Niðurstaðan var því sú að kröfu Festu-lífeyrissjóðs var hafnað og ákvörðun sýslumanns um endursendingu beiðninnar staðfest.

Hvaða skref voru tekin

Í ljósi framangreinds máls þá skráðum við þjónustu Justikal fyrir öruggar rekjanlegar gagnasendingar sem póstþjónstu hjá Byggðastofnun í samræmi við lög um póstþjónustu nr. 98/2019. Umrædda þjónustu er því nú hægt að nota til að senda ábyrgðarbréf með stafrænum hætti.

Auk tæknilegs öryggis og rekjanleika tryggir stafræn birting betur friðhelgi einkalífs og persónuvernd. Oft er um að ræða viðkvæm mál og getur það valdið verulegum óþægindum ef stefnuvottur birtist á heimili einstaklings, til dæmis í fjölbýlishúsi þar sem nágrannar geta gert sér grein fyrir tilefni heimsóknarinnar. Það sama á við um þegar börn eru á heimilinu og foreldrar leitast við að vernda fyrir slíkum aðstæðum. Með rafrænni birtingu er hægt að tryggja að einungis viðkomandi aðili sjái efni skjalsins með öruggri rafrænni auðkenningu.

Það sem skiptir mestu máli er að tryggt sé að tilkynningar, úrskurðir og önnur erindi komist til skila með sannanlegum hætti. Nú býðst markaðnum tækifæri að bjóða sínum viðskiptavinum betri þjónustuupplifun þar sem öruggi, hraði og þægindi eru í algjöru fyrrirrúmi.