Katrín Jakobsdóttir og Margrét á frumkvöðlalista NBC
MBL.is greindi frá:
"Margrét Anna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Justikal, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra eru á lista NBC yfir 23 áhrifamestu kvenfrumkvöðlana í stjórnmálum og viðskiptum á heimsvísu.
Í greininni, þar sem listinn er kynntur, segir að Ísland sé dæmi um land þar sem konur séu leiðandi á ýmsum sviðum, allt frá stjórnsýslu yfir í heim viðskipta, tækni, miðlunar og jafnvel óhagnaðardrifinna samtaka.
Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra þarf vart að kynna.
Í greininni segir að Katrín hafi stigið stórt skref í baráttunni fyrir kvenréttindum með því að beita sér fyrir því að konur og karlar nýti sér bæði fæðingarorlof, enda sé með því komið í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns þegar kemur að ráðningum.
Margrét hefur verið töluvert í sviðsljósinu í tækniheiminum undanfarna mánuði vegna fyrirtækisins Justikal, sem hún er einn stofnenda að.
Fyrirtækið framleiðir hugbúnaðarlausn sem gerir lögmönnum og málsaðilum kleift að senda gögn rafrænt til dómstóla og fylgjast með framvindu mála sinna rafrænt."
Nýjar fréttir
Hæstiréttur staðfestir að stefnur í einkamálum verði að vera á pappír – Hvað þýðir þetta fyrir stafræna málsmeðferð?
Þann 26. febrúar féll dómur Hæstaréttar í máli nr. 1/2025, Menntasjóður námsmanna gegn fyrrverandi skjólstæðingi.
Justikal er nú á skrá yfir viðurkennda póstþjónustuaðila hjá Byggðastofnun
Justikal hefur skráð þjónustuna fyrir Öruggar rekjanlegar gagnasendingar sem póstþjónustu hjá Byggðastofnun, í samræmi við lög um póstþjónustu nr. 98/2019.
Ný tækni mætir gömlum lagaramma
Þann 26. febrúar 2025 féll dómur Hæstaréttar í máli nr. 1/2025 sem snerist um hvort rafræn stefnubirting stæðist formkröfur einkamálalaga. Stefna hafði verið birt með þjónustu Justikal, þar sem móttakandi undirritaði hana með fullgildri rafrænni undirskrift og staðfesti móttöku. Hæstiréttur taldi slíka birtingu ekki uppfylla skilyrði XIII. kafla laga nr. 91/1991 og staðfesti að stefna í einkamálum verði að vera á pappír.