24 Aug 2023

Salóme nýr framkvæmdastjóri rekstrar

Share

Salóme Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri rekstrar (e. Chief Operating Officer) hjá Justikal og gengur jafnframt inn í stofnendateymi félagsins. Salóme mun leiða sókn og stefnu fyrirtækisins inn á erlenda markaði og bera ábyrgð á daglegum rekstri og uppbyggingu starfseminnar.

Justikal gerir lögmönnum og öðrum aðilum m.a. kleift að senda gögn rafrænt til dómstóla og er hannað til að hraða meðferð mála, gera þau skilvirkari og aðgengilegri fyrir málsaðila.

Salóme starfaði áður sem forstöðumaður í viðskiptaþróun hjá PayAnalytics. Hún hefur frá árinu 2021 einnig starfað sem stjórnarmaður og ráðgjafi hjá Eyri Venture Managment og leiðbeinandi við MBA nám Háskólans í Reykjavík. Hún starfaði sem framkvæmdastjóri Icelandic Startups árin 2014 til 2021. Þar áður var hún forstöðumaður Opna háskólans í HR. Salóme er með BSc próf í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og lauk AMP stjórnendanámi við IESE í Barcelona árið 2019. Salóme hefur víðtæka reynslu af nefndar- og stjórnarstörfum í íslensku atvinnulífi og situr m.a. í stjórn Sýnar hf., Viðskiptaráðs Íslands og Eyrir Ventures ehf. 

Ráðning Salóme er liður í þeirri vegferð að styrkja stjórnendateymi Justikal og undirbúa félagið fyrir sókn á erlenda markaði.

"Það er spennandi áskorun að ganga til liðs við Justikal á þessum tímapunkti í vexti félagsins. Fyrirtækið hefur náð góðri fótfestu á Íslandi og alla burði til þess að vaxa hratt erlendis. Framundan eru mikil tækifæri til sóknar og við erum með metnaðarfull plön. Ég hlakka til að stíga af krafti inn í nýtt hlutverk" segir Salóme.