27 May 2025

SMS tilkynningum bætt við öruggar rekjanlegar gagnasendingar

SMS tilkynningar
Share

Hvaða breyting var gerð?

Með öruggu rekjanlegu gagnasendingarþjónustu Justikal er tryggt að einungis skilgreindur viðtakandi með skráða kennitölu fái aðgang að tilteknu skjali.

Hingað til hefur einungis verið hægt að senda tilkynningu um gagnasendingu með tölvupósti. Nú hefur verið bætt við nýjum valkosti sem gerir sendendum kleift að senda tilkynningar einnig með SMS-skilaboðum.

SMS tilkynningar í öruggum rekjanlegum gagnasendingum

Af hverju var breytingin gerð?

Markmið uppfærslunnar er að auka sveigjanleika og bæta þjónustu við notendur. Í sumum tilvikum liggur aðeins fyrir símanúmer viðtakanda en ekki tölvupóstfang og í öðrum tilvikum er öfugt farið. Með þessari viðbót geta sendendur valið þá leið sem hentar best hverju sinni, eða sent bæði tölvupóst og SMS til að tryggja að tilkynningin berist hratt og örugglega.

Sérmerkt útlit gagnasendinganna

Við minnum á að hægt er að bæta nafni, myndmerki og aðallit fyrirtækis í stillingum. Að uppfærðum stillingum geta notendur valið að senda gagnasendingar með útliti fyrirtækisins og falið sitt persónulega nafn. Sjá nánar.

Við bjóðum einnig aðgang að API þjónustunni okka til að tengja við innri kerfi viðskiptavina sé þess óskað.

Smella hér til að horfa á leiðbeiningarmyndband.

Justikal í staðin fyrir almennar bréfsendingar

Þjónustuna er einnig hægt að nota í staðin fyrir almennar bréfsendingar. Í þeim tilvikum gerum við ákveðna þætti þjónustunnar valkvæða, sem gerir okkur kleift að bjóða samkeppnishæft verð í samanburði við almennar bréfsendingar.

Um öruggar rekjanlegar gagnasendingar

Öruggar rekjanlegar gagnasendingar eru sérstaklega gagnlegar þegar viðkvæm skjöl eru send milli aðila og fyllsta öryggis þarf að gæta. Sendandinn skráir nafn, kennitölu, tölvupóst og/eða símanúmer viðtakanda, en aðeins sá viðtakandi getur auðkennt sig með sínum rafrænu skilríkjum til að opna skjalið.

Justikal veitir sendanda móttökustaðfestingu um leið og viðtakandinn hefur auðkennt sig og móttekið skjalið. Þannig getur sendandinn verið fullviss um að skjalið hafi borist réttum aðila og hvenær hann veitti því viðtöku.

Þjónustan hefur hlotið skráningu og heimild hjá Byggðastofnun Íslands sem póstþjónusta sem þýðir með öðrum orðum að nú er heimilt að senda ábyrgðarbréf með henni. Sjá nánar.